Jæja, tölvan komin í lag.
Ég hef verið að velta svolitlu fyrir mér undanfarna daga
varðandi stress. Mér finnst svo mikið um það talað hvað konur eru
þreyttar og hreinlega búnar á þvi bæði andlega og líkamlega og er
þetta mjög svo oft vegna vinnu. Við vinnum kannski 100% vinnu
5 daga vikunnar og förum svo í ræktina annað hvort eldsnemma, fyrir
vinnu eða eftir vinnu og erum þá kannski komnar heim um kl. 19 í
fyrsta lagi og eigum þá eftir að útbúa matinn fyrir fjölskylduna.
Nú svo koma skylduverk heimilisins......þvottur, tiltekt í
eldhúsinu, uppvask o.þ.h. Sumar þurfa að hlíða börnunum yfir
lærdóminn sinn og fleira í þessum dúr. (ég sleppi við það - þau
læra í skólanum, sem betur fer)
Við erum allt of margar svona og svo má engin vera að því
að heimsækja neinn vegna þess að við erum svo uppteknar af
einhverju öðru eða kannski bara þreyttar eftir daginn og viljum fá
að vera í friði fyrir framan TV. .......Kannast einhver við
þetta??
Við erum engar "Superwoman" og getum ekki ætlast til að geta það
sama og mæður okkar í heimilisverkum, því flestar voru þær
heimavinnandi á meðan börnin voru í skóla (tala reyndar fyrir mig)
og höfðu daginn til að gera það sem við ætlum að gera kannski frá
kl. 17-21 flestar okkar. Ég persónulega vinn 5 daga vikunnar 100%
vinnutíma og mér dettur hreinlega ekki í hug að fara að þrífa þegar
ég kem heim. Svo skiljum við ekkert í því að við séum hreinlega að
kikkna undan þessu öllu...púff!! Það er svo mikill asi alls staðar
og allar alltaf að flýta sér og maður bara stressast allur upp

Ég stunda ekki líkamsrækt en fer í 1/2 tíma göngutúra á kvöldin
eftir að vera búin að gefa fjölskyldunni að borða, síðan bið ég
oftast stelpurnar mínar að taka af borðinu og setja í
uppþvottavélina á meðan. Í göngunni... sem ég fer venjulega
ein.... fæ ég mjög góðan tíma með sjálfri mér til að hugleiða og
kem svo venjulega endurnærð heim.
En í dag eftir vinnu kl.18 fórum við nokkur úr vinnunni í
fjallgöngu og gengum upp fjallið Þorbjörn við Bláa lónið og vorum
við 1 og hálfan tíma að þessu og ég ætla ekki að lýsa því hvað ég
er sæl með sjálfa mig núna, búin að fara í heitt bað, borða
kjúklingasalad og DDV íspinna í náttfötunum mínum. 
Ég er reyndar ekkert stressuð í dag og mér líður bara VEL.
með allt draslið í kringum mig - er reyndar búin að losa mig við
helling af því eftir að ég keypti bókina "Burt með Draslið" og
skipuleggja allt svo miklu betur 
Vel á minnst - Fór einhver á THE SECRET í Háskólabíó ????
Ég fór og á reyndar diskinn líka og horfi reglulega á hann og ég
verð að segja að hann er að gera mér gott.
Æi, þetta var eitthvað sem ég var að koma frá mér - og ekkert
persónulegt - bara smá hugleiðing.
Takk fyrir stuðninginn elsku bloggsystur og vonandi eigið þið
góðan frídag í dag!