Ég get svo svarið fyrir það! ég hef ekki bloggað í sex
daga...heil eilífð síðan!! 
Það er búið að vera eitthvað svo mikið að gera hjá mér og
ég verð að viðurkenna að ég hef verið soldið með hugann við
Danmörk undanfarið og verið að lesa bloggsíður íslendinga í Horsens
og hreinlega misst mig þar inni. Þar er komið sumar!!! Búin að
panta farið seinni partinn í sumar og förum við 1. ágúst og
verðum til 15. (tvær vikur). Ég ætla að skoða skólann og nágrennið
og ætlum við að reyna að fá leigt í Horsens. eða vera á
farfuglaheimili eða hvoru tveggja 
Jæja, fór loksins í viktun í dag og fór yfir páskana 1.4 kg.
(tvær vikur) hefði svosem getað betur en ég svindlaði soldið. Ég
fann það að bara við að sleppa einni viku fór ég að slá slöku við í
matarræðinu og átti bara soldið erfitt með mig. Einn nammibiti hér
og vaffla með rjóma þar.....en sem betur fer var nú ekkert mikið af
þessu og gat ég hamið mig flesta dagana. 
Nú er ég s.s orðin 91.6 kg. og stefnan var að vera búin að losna
við 15 kg. fyrir 1. maí. vantar 2.4 til að ná því. Segjum sem svo
að það verði ekki þá er ég samt að vinna sigur...því ég veit að ég
hlít að ná 1.7 kg. fyrir 1. maí og þá er ég komin niður um nýjan
tug og það er sigur útaf fyrir sig. e-þa'ggi 